DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;
Ysta Tunga er einbýlishús, byggt samkv. FMR árið 1943 úr steypu, að sögn eiganda var byggt við húsið árið 2010 og það stækkað í 143,6 fm, en þá stóð til að breyta húsinu í parhús. Húsið stendur á 914 fm lóð. Skipulag hússins að innan ber þess merki og lítið mál væri að slá upp vegg í miðju húsinu til að aðskilja húsið í 2 sérstæðar íbúðir. Hægra megin í húsinu / gamla hlutanum þar er rúmgott eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi.Í vinstra hluta hússins / nýja hlutanum, þar er þvottahús, baðherbergi með sturtu, 2 svefnherbergi og rúmgóð stofa.* 4 Svefnherbergi eru í húsinu
* 2 Baðherbergi
* Óskert útsýni er úr stofunni
* Rúmgott eldhús og rúmgóð stofa
* Við afhendingu skilast húsið með nýjum gluggum í gamla hlutanumLýsing á eign; Gengið er inn í húsið frá verönd sem er fyrir framan húsið. Forstofan er flísalögð, þar á hægri hönd er mjög rúmgott eldhús með ágætis innréttingu, parket er þar á gólfi. 2 ágæt svefnherbergi eru inn af eldhúsinu, bæði með parket á gólfum. Baðherbergið var endurnýjað fyrir ekki svo löngu síðan, það er flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum á veggjum og ljósum flísum á gólfi, lítið hornbaðkar, upphengt salerni og rúmgóð baðinnrétting með vask. Innangengt er í hitakompu frá baðherbergi. Nýr gluggi er á baðherberginu.
Þvottahúsið er ágætlega rúmgott, nýleg innrétting þar sem tækin eru í vinnuhæð. Flísar eru á gólfi.
Svo er gengið inn í nýju viðbygginguna, þar sem hægt væri að slá upp vegg til að aðskilja húsið í 2 íbúðir.
Nýbyggingin er með uppteknum loftum í alrýminu, hallogenlýsing er í loftum. 2 rúmgóð svefnherbergi með parket á gólfum, fínasta baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og innréttingu. Rúmgóð stofa, með stórum gluggum og útsýni yfir bæinn.
Eigandi hússins er búin að smíða glugga í gamla hluta húsins, húsið afhendist því með nýjum gluggum þar sem á eftir að skipta þeim út.
Sólpallur er framan við húsið, nýtt þak er á eldri hluta Ystu Tungu sem var endurnýjað á sama tíma og nýbyggingin var gerð.
Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.