DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;
Sjarmerandi efri hæð við Strandgötu 15 á Patreksfirði með óskertu útsýni út á fjörðinn.
55,4 fm íbúð á efri hæð með sér inngang og geymslu á jarðhæð undir stiga.
Íbúðin telur stofu, eldhús, hjónaherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar.
* Frárennslið var nýlega endurnýjað í húsinu.Gengið er upp steyptar tröppur, þegar að inn er komið tekur á móti gangur. B
aðherbergi er á vinstri hönd með salerni og handlaug. Tengi er fyrir þvottavél og búið er að gera við og endurnýja lagnir eftir leka sem upp kom, lagnir eru klárar fyrir nýja sturtu en frárennslið í húsinu var endurnýjuð út í götu. Dúkur er á gólfi og Fibo baðherbergisplötur eru á veggjum.
Stofan er með harðparket á gólfi, skemmtilegt útsýni er úr stofunni.
Eldhúsið er með eldri innréttingu með rennihurðum sem er ótrúlega heilleg. Skápur/hol er í eldhúsi þar sem hitakúturinn og lagnir fyrir húsið er staðsett. Borðkrókur er við glugga, dúkur á gólfi.
Hjónaherbergi er inn af eldhúsi, skápur með rennihurð, dúkur á gólfi. Skemmtilegt útsýni er út á fjörð.
Húsið er klætt að utan með steni plötum og því viðhaldslétt.
Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.