DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;
Skemmtileg íbúð á 3 pöllum við Sigtún 41.
ÍBÚÐIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING!
* Nýlegt þak er á húsinu
* Búið er að endurnýja vatnslagnir
* Búið er að endurnýja ofna og ofnalagnir
* Ísskápur og uppþvottavél fylgir
* 2 svefnherbergi
* Rúmgóð stofa
* Rúmgott þvottahúsLýsing á eign;Gengið er inn í flísalagða
forstofu, veggfóður er á veggjum. Skóskápur fylgir.
Þegar að inn er komið er gengið inn á mið pallinn, eldhúsið á hægri hönd. Hátt er til lofts og það er opið upp í stofuna frá alrýminu.
Búið er að fríska upp á
eldhúsið með svartri filmu, múrsteins vegg klæðning er á milli skápa. Nýleg borðplata og nýleg eldhússtæki - Bakaraofn og helluborð. Einnig fylgja ísskápurog uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsi.
Þvottahús er mjög rúmgott, það er við hlið forstofunnar, þar er hátt til lofts og möguleiki á að koma fyrir millilofti. Hægt er að ganga út úr þvottahúsinu og út á stétt fyrir framan hús.
Stigi er upp á efsta pall, þar er
stofan með útgengt á suður svalir. Harðparket er á gólfi. Búið er að mála skápana svarta við stigann.
Á neðsta palli eru svo
2 Svefnherbergi og baðherbergi,Hjónaherbergið er með skápum. Útgengt er út í garð frá hjónaherberginu og komið er leyfi fyrir sólpalli á baklóðinni.
Barnaherbergið er ágætlega rúmgott, harðparket á gólfi.
Baðherbergið er með baðkari, innréttingu og salerni. Flísar eru á gófli og plötur á baðkari.
Þetta er mjög skemmtileg eign, vel staðsett og sérlega rúmgóð. Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.