Aðalstræti 105, 450 Patreksfjörður
28.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
5 herb.
147 m2
28.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1903
Brunabótamat
44.220.000
Fasteignamat
27.600.000

DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;

Einstakt einbýlishús á frábærum stað á Patreksfirði sem ber það virðulega nafn HLIÐSKJÁLF


Einbýlishúsið stendur við Aðalstræti 105. Húsið stendur eitt og sér með frábært útsýni til sjávar.
Húsið sjálft er 114,9 fm, þar að auki er 32 fm geymsla á baklóð byggð árið 1958 sem er talin með í heildar fermetrafjölda eignarinnar, als 147,1 fm.
Húsið stendur á 549 fm leigulóð.



* Húsið er byggt samkv þjóðskrá Íslands árið 1903 og er því friðað samkvæmt lögum.
* Búið er að endurnýja vatnslagnir að hluta í húsinu og búið er að setja nýjan forhitara.
* Búið er að pússa upprunalegan panilinn á gólfum, í eldhúsi, forstofu og barnaherbergi er nýlegt parket.
* Að utan er húsið klætt með bárujárni.

* Skipt var um þak á húsinu í kringum árið 2004.
 
Lýsing eignar:
Gengið er inn í rúmgóða forstofu að baka til, þar fyrir innan er baðherbergi með flísum á gólfi, sturtubotn, handlaug og salerni ásamt tengi fyrir þvottavél. 
Ágætis svefnherbergi er við stigann þegar að inn er komið.
Eldhúsið er með L innréttingu en búið er að smíða eyju sem skilur að hluta af eldhúsi og borðstofu. Þar komu eigendur fyrir uppþvottavél. 
Stofan er rúmgóð, skemmtilegt útsýni er yfir fjörðinn frá stofu.
Annar inngangur er í húsið við hlið stofunnar, þar er nýleg útidyrahurð. Forstofan er í dag nýtt sem skrifstofa.
Gengið er upp brattan stiga á efri hæð hússins, þegar að upp er komið þar eru 2 rúmgóð svefnherbergi og 2 minni rými. Búið er að útbúa skrifstofu undir súðinni en mögulegt væri að bæta við öðru skrifstofu-herbergi.
Búið er að endurnýja efri hæðina töluvert, nýr panill er í lofti alrýmis og í skrifstofu, þar var loftið einangrað.
Að utan er húsið klætt með bárujárni.
Skipt var um þak á húsinu í kringum árið 2004.
kjallarinn er 23.8 fm, en þar er ágætlega rúmgóð geymsla ásamt lagnagrind hússins.

Aftan við húsið er ágætlega stór 32 fm skúr/geymsla, steypt gólf er í hluta hans og rafmagn. Skúrin er orðin heldur lúinn en hann er þó nýttur í dag sem geymsla.

Nýlegur lóðarleigusamningur er með eigninni.


 

Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.