DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir;
EINSTÖK STAÐSETNING NIÐUR VIÐ SJÓ!
Sælundur 3 ber nafn með réttu, hér er um að ræða Einbýlishús við sjóinn í blíðunni á Bíldudal þar sem er einstakt útsýni út á sjóinn, lækur rennur á lóðarmörkum og fjaran er hársbreidd frá húsinu.
* 5 Svefnherbergi
* 2 Baðherbergi
* Óhindrað útsýni er út á sjó
* Töluvert er af óskráðum fermetrum á efri hæð hússins.Lýsing á eigninni;
Húsið er skráð 183.8 fm, þar af er neðri hæðin 132.2 fm og risið er aðeins skráð 51.6 fm.Á neðri hæð er
forstofa með korkflísum á gólfi.
Rúmgóð
stofa með óhinduðu útsýni út á sjó, stórir stofugluggarnir gefa eigninni einstakt yfirbragð. Útgengt er á skjólsælan sólpall frá stofu.
Eldhús og stofan hafa útsýni út á sjó, eldhúsið var endurnýjað fyrir nokkurum árum. Hvít eldhúsinnrétting með eikar borðplötu, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu og fínn eldhúskrókur. Ljósar kork flísar eru á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar eru auðvitað gluggar sem snúa einnig niður að sjó þannig að hægt er að njóta útsýnisinns áfram á meðan að gengið er frá þvottinum;) Í þvottahúsi er eldri innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð. Hægt er að ganga út úr þvottahúsi og út á lóð.
3 Svefnherbergi eru á neðri hæðinni.
Hjónaherbergi er með skápum og
barnaherbergin eru 2 á neðri hæðinni ( einnig eru 2 rúmgóð herbergi í risinu ásamt sjónvarpsholi/skrifstofu)
Baðherbergið var einnig endurnýjað fyrir nokkurum árum, fíbó plötur eru á veggjum, hornbaðkar og innrétting með vask og salerni.
Gestabað er einnig á neðri hæðinni, þar er handlaug, salerni og sturta.
- Timbur stigi er upp á efri hæð hússins, þar er að finna rými sem er að mörgu leyti óskrifað blað, þar er hátt til lofts yfir miðrýminu sem lækkar svo til beggja átta í súð sem er að mestu leyti ekki skráð í heildar fm hússins.
Efri hæðin telur mjög rúmgóða skrifstofu/svefnherbergi, rúmgott hol sem ætlað var að nýta sem sjónvarpshol ásamt öðru svefnherbergi. Þá er einnig rúmgóð geymsla á efri hæðinni.
* Samkvæmt þjóðskrá íslands er efri hæðin aðeins skráð 51.6 fm en hún er töluvert stærri.Þetta hús stendur á einstökum stað og það býður upp á ótal möguleika. Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.