DIXON - Fasteigna & Jarðasala kynnir
Skemmtilegt einbýlishús við Grænabakka 6 á Bíldudal, húsið er skráð 187 fm og það er á 3 hæðum.Búið er að taka húsið töluvert í gegn að innan;
Búið er að endurnýja vatnslagnir og rafmagn.
Árið 2013 var bætt við baðherbergi á miðhæðina ásamt því að gólfefni voru endurnýjuð.
Nýlegur sólpallur er við húsið.Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt.Lýsing á eigninni;Gengið er inn á miðhæð hússins í flísalagða forstofu.
Þegar að inn er komið er eldhúsið á gægri hönd og stofan til vinstri.
Eldhúsið er rúmgott með ágætis innréttingu. Gott borðpláss er fyrir eldhús / borstofuborð.
Stofan er opin og björt
Salerni með ágætis innréttingu, flísar á gólfum.
Nýr stigi var settur á milli hæðanna þegar að eigendur tóku húsið í gegn 2013
Á neðri hæðinni er sjónvarpshol, 1 herbergi sem í dag er nýtt sem skrifstofa og geymslan er inn af skrifstofunni.
Efri hæðin; Uppi eru 3 rúmgóð svefnherbergi ásamt aðal baðherberginu.
Hjónaherbergið er rúmgott með rúmgóðu fataherbergi innaf, það má auðveldlega nýta sem barnaherbergi.
2 rúmgóð svefnherbergi.Baðherbergið er með baðkari, salerni og nýlegri innréttingu.
Allar nánari uppls um eignina gefur Steinunn í síma 839-1100 eða á [email protected]Allar frekari upplýsingar um eignina gefur Steinunn Sigmundsdóttir Lg. Fasteignasali
Hægt er að ná í mig í síma 839-1100 eða á [email protected]
*****************************************************************************************************
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðil
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv verðskrá.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.